VÍS: Samsett hlutfall og ávöxtun fjáreigna júlí 2020


Samsett hlutfall* í júlí 2020 var 89,9% en var 111,8% í júlí 2019. Samsett hlutfall það sem af er ári er 111,3% og samsett hlutfall síðustu 12 mánaða er 104,6%. Tjónaþróun hefur verið jákvæð undanfarna mánuði sem endurspeglast í samsettu hlutfalli í júlí.

VÍS greiddi viðskiptavinum sínum tæpan 1,2 milljarð króna í tjónabætur** í júlí og hefur greitt viðskiptavinum sínum rúma 10 milljarða króna í tjónabætur það sem af er ári.

Ávöxtun fjárfestingaeigna í júlí var 0,8% en ávöxtun til loka júlí frá áramótum var 4,8%.


*Samsett hlutfall er tjónakostnaður, endurtryggingakostnaður og rekstrarkostnaður af vátryggingastarfsemi sem hlutfall af iðgjöldum tímabilsins samkvæmt leiðbeinandi tilmælum Seðlabanka Íslands, fjármálaeftirlits nr. 1/2020.
**Hafa skal í huga að tjónakostnaður tryggingafélaga getur sveiflast á milli mánaða.


Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri VÍS, í síma 660-5260 eða með netfanginu erlat@vis.is


GlobeNewswire

Recommended Reading