Festi hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunnar


Aðalfundur Festi hf., sem haldinn var 23. mars 2020, veitti stjórn félagsins heimild, á grundvelli 55. gr. laga um hlutafélög, nr. 2/1995, að kaupa fyrir hönd félagsins allt að 10% af hlutafé þess. Markmið áætlunarinnar er að lækka útgefið hlutafé félagsins.

Stjórn Festi hf. hefur á grundvelli samþykktar aðalfundar tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar Áætlað er að kaupa á hámarki 4.000.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 1,2% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 600 milljónum króna að kaupverði.

Kaupin verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags verða að hámarki 194.000 hlutir sem jafngildir 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins á Nasdaq OMX á Íslandi í september 2020. Endurgjald fyrir hvern hlut skal að hámarki vera hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í viðskiptakerfi Nasdaq OMX á Íslandi, hvort sem er hærra.

Gert er ráð fyrir að endurkaup samkvæmt áætluninni hefjist mánudaginn 5. október 2020 og mun áætlunin gilda fram að aðalfundi félagsins 2021, en þó aldrei lengur en til 21. september 2021, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Markaðsviðskipti Arion banka hf. munu hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna, óháð félaginu.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlun verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.

Nánari upplýsingar veitir Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi hf., (eggert@festi.is) og Magnús Kr. Ingason, fjármálastjóri Festi hf. (mki@festi.is)