Hagar hf. – upplýsingar um birtingu uppgjörs 2. ársfjórðungs 2020/21


Hagar hf. birta uppgjör 2. ársfjórðungs, þ.e. fyrir tímabilið 1. júní 2020 til 31. ágúst 2020, eftir lokun markaða, fimmtudaginn 29. október nk.

Rafrænn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn þann 30. október kl. 08:30. Fundinum verður varpað í gegnum netið á vefslóðinni https://livestream.com/accounts/11153656/events/9365572/player þar sem Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar og samstæðu, munu kynna rekstur og afkomu félagsins, ásamt því að svara fyrirspurnum.

Tekið verður við spurningum sem tengjast uppgjörinu á meðan á útsendingu stendur á netfangið fjarfestakynning@hagar.is  og verður þeim svarað eins og kostur er í lok fundar.

Kynningargögn verða aðgengileg á heimasíðu Haga, www.hagar.is, við upphaf fundar.