Í 44 viku 2020 keypti Festi alls 750.000 eigin hluti fyrir 114.637.500 kr. eins og hér segir:
Eigin hlutir | ||||||
Vika | Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | samtals |
44 | 26.10.2020 | 09:41:15 | 150.000 | 155,00 | 23.250.000 kr | 7.945.407 |
44 | 27.10.2020 | 10:06:30 | 150.000 | 152,75 | 22.912.500 kr | 8.095.407 |
44 | 28.10.2020 | 10:10:51 | 150.000 | 151,25 | 22.687.500 kr | 8.245.407 |
44 | 29.10.2020 | 09:48:53 | 150.000 | 152,25 | 22.837.500 kr | 8.395.407 |
44 | 30.10.2020 | 11:13:13 | 150.000 | 153,00 | 22.950.000 kr | 8.545.407 |
750.000 | 114.637.500 kr |
Um er að ræða reglubundna tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 4. október 2020 í tilkynningu til Nasdaq OMX Iceland. Áætlað er að kaupa á hámarki 4.000.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 1,2% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 600 milljónum króna að kaupverði.
Fyrir kaupin þá átti Festi 5.645.407 hluti eða 1,70% af útgefnu hlutafé. Festi hefur nú keypt samtals 2.900.000 eigin hluti fyrir 437.162.500 kr. og á í dag 8.545.407 hluti sem samsvarar 2,57% af hlutafé félagsins.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka II við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, fjármálastjóri Festi hf. (mki@festi.is).