Brim: Kynning á uppgjöri þriðja ársfjórðungs



Brim mun birta uppgjör sitt fyrir þriðja ársfjórðung eftir lokun markaða fimmtudaginn 19. nóvember.
Kynningarfundur verður haldinn föstudaginn 20. nóvember klukkan 8:30. Í ljósi aðstæðna fer hann eingöngu fram í gegnum fjarfundarbúnað. Hægt er að sækja um aðgang að fundinum á póstfangið kynning@brim.is.

Kristján Þ. Davíðsson stjórnarformaður mun kynna uppgjörið og svara spurningum.