Source: Reitir fasteignafélag hf.

REITIR: Útgáfa á nýjum skuldabréfaflokki REITIR150523

Reitir fasteignafélag hf. hefur lokið sölu á skuldabréfum í nýjum skuldabréfaflokki, REITIR150523.

Flokkurinn er óverðtryggður og tryggður með almennu tryggingafyrirkomulagi félagsins. Flokkurinn ber 3,05% fasta ársvexti og er með einum gjalddaga höfuðstóls 15. maí 2023 og vaxtagreiðslum á líftíma flokksins. Seld voru skuldabréf að nafnverði 4.000.000.000 króna á pari.

Stefnt er að uppgjöri viðskiptanna þriðjudaginn 15. desember og verður óskað eftir því að nýju bréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland sama dag.

Grunnlýsing félagsins, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreinds skuldabréfaflokks verða birt á vefsíðu félagsins, reitir.is/fjarfestar. Tilkynningar sem Reitir fasteignafélag hf. birtir í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins.

Fossar markaðir hafa umsjón með sölu skuldabréfanna.

Nánari upplýsingar veita Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, netfang: einar@reitir.is, sími 669 4416, og Matei Manolescu, Markaðsviðskipti, Fossar markaðir, netfang: matei.manolescu@fossarmarkets.com, sími 522 4008.