Reitir kaupa Nauthólsveg 50


Reitir hafa í dag undirritað kaupsamning við dótturfélag Icelandair Group hf. um kaup á fasteigninni að Nauthólsveg 50. Um er að ræða 6.474 fermetra skrifstofuhúsnæði sem hýst hefur starfsemi Icelandair Group hf. og dótturfélaga og mun gera áfram um sinn en samhliða kaupsamningnum hefur verið gengið frá leigusamningi þar um til næstu þriggja ára. Reitir munu gera nánari grein fyrir fyrirætlunum sínum varðandi fasteignina til lengri framtíðar í ársuppgjöri félagsins.

Kaupverð fasteignarinnar er 2.250 m.kr., fjármagnað með lánsfé og handbæru fé. Forsenda kaupverðsins er að áreiðanleikakönnun á fasteigninni leiði ekki til breytinga á því og skal henni lokið fyrir þann 1. mars nk. Afhending eignarinnar fór fram við undirritun kaupsamningsins. Leiða kaupin til þess að áætlaður rekstrarhagnaður (NOI) Reita hækkar um 160 m.kr. á ársgrundvelli.

Nánari upplýsingar veita Guðjón Auðunsson, forstjóri, í síma 660 3320 eða Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416.