Síminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 3. viku 2021 keypti Síminn hf. 6.000.000 eigin hluti að kaupverði 48.480.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti
18.1.202109:532.000.0008,08016.160.000288.679.684
19.1.202110:142.000.0008,08016.160.000290.679.684
22.1.202109:352.000.0008,08016.160.000292.679.684
  6.000.000 48.480.000292.679.684

Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 30. nóvember 2020. Endurkaup núna samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 500 milljónum króna. Áætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins árið 2021, en þó aldrei lengur en til 12. mars 2021 eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.

Síminn átti 286.679.684 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 292.679.684 eða sem nemur 3,34% af útgefnum hlutum í félaginu.

Síminn hefur keypt samtals 58.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,66% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 462.510.000 kr.

Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is.