Tilnefningarnefnd Reita fasteignafélags hf. auglýsir eftir tilnefningum eða framboðum til stjórnar


Tilnefningarnefnd Reita auglýsir eftir tilnefningum eða framboðum til stjórnar félagsins vegna aðalfundar sem haldinn verður 11. mars 2021.

Í því skyni að fá umfjöllun tilnefningarnefndar um tilnefningar eða framboð til stjórnar er áhugasömum bent á að fylla út form, sem finna má á vefsíðu félagsins, og senda nefndinni eigi síðar en 3. febrúar 2021 á netfangið tilnefningarnefnd@reitir.is.

Farið verður með allar persónuupplýsingar sem tilnefningarnefnd berast sem trúnaðarmál og í samræmi við reglur um persónuvernd. Tillaga nefndarinnar um val á stjórnarmönnum verður birt samhliða boðun aðalfundar eða í síðasta lagi þremur vikum fyrir aðalfund. Önnur framboð verða birt sex sólarhringum fyrir aðalfund. Einstaklingur sem nefndin gerir ekki tillögu um sem stjórnarmann í félaginu getur ávallt gefið kost á sér til stjórnarsetu með því að skila inn formi framboðs til stjórnar innan hins almenna framboðsfrests samkvæmt samþykktum Reita, þ.e. sjö sólarhringum fyrir aðalfund.

Form vegna umfjöllunar í tilnefningarnefnd eða framboðs til stjórnar má finna á vefsíðu félagsinswww.reitir.is.

Tilnefningarnefnd Reita fasteignafélags hf.