Islandsbanki hf.: Birting afkomu 4F2020


Íslandsbanki mun birta afkomu fyrir fjórða ársfjórðung 2020 eftir lokun markaða 10. febrúar.

Símafundur með markaðsaðilum kl. 09.30 fimmtudaginn 11. febrúar.

Símafundur með markaðsaðilum vegna uppgjörs verður haldinn fimmtudaginn 11. febrúar kl. 09.30. Farið verður yfir helstu atriði í íslenskum efnahagsmálum og afkomu bankans. Fundurinn verður haldinn á ensku.

Vinsamlega skráið ykkur á símafundinn með að senda póst á: ir@islandsbanki.is. Fundargögn og aðgangsorð vegna símafundar verða send út til skráðra aðila fyrir fundinn.

Árs- og sjálfbærniskýrsla bankans fyrir árið 2020 verður birt samhliða uppgjöri.

Fjárhagsdagatal

Stefnt er á að halda aðalfund og að birtingu árshluta uppgjöra bankans á neðangreindum dagsetningum

  • Aðalfundur — 18. mars 2021
  • Árshlutauppgjör 1F21 — 5. maí 2021
  • Árshlutauppgjör 2F21 — 28. júlí 2021
  • Árshlutauppgjör 3F21 — 27. október 2021

Vinsamlegast athugið að dagsetningarnar eru birtar með fyrirvara um breytingar.

Nánari upplýsingar veitir Sigrún Hafþórsdótir, Fjárfestatengsl, ir@islandsbanki.is. Sími: 440 4717

Póstlisti Íslandsbanka
Ef þú vilt gerast áskrifandi að kauphallarfréttum Íslandsbanka þá vinsamlega skráðu þig hér: https://www.islandsbanki.is/is/grein/postlisti_ir

Um Íslandsbanka
Íslandsbanki er leiðandi fjármálafyrirtæki á Íslandi með djúpstæðar rætur í íslenskri atvinnusögu sem nær yfir 145 ár. Markaðshlutdeild bankans er á bilinu 25-40% á innanlandsmarkaði. Með hlutverkið „saman erum við hreyfiafl til góðra verka svo að þú náir árangri” og framtíðarsýnina að vera #1 í þjónustu að leiðarljósi vinna þrjú viðskiptasvið þétt saman til þess að tryggja góð sambönd við viðskiptavini bankans.
Til að koma enn betur til móts við síbreytilegar þarfir viðskiptavina hefur Íslandsbanki þróað margvíslegar stafrænar lausnir svo sem app Íslandsbanka og Kass. Á sama tíma rekur bankinn skilvirkasta útibúanetið með 12 útibú staðsett á lykilstöðum um land allt. Íslandsbanki hefur BBB/A-2 lánshæfismat frá S&P Global Ratings. www.islandsbanki.is

Fyrirvari
Framangreind fréttatilkynning gæti vísað til spár um framtíðarhorfur sem er háð áhættu- og óvissuþáttum og getur þýtt að raunverulegur árangur verði umtalsvert frábrugðinn því sem spáð er í þessari fréttatilkynningu. Íslandsbanki hf. hefur ekki skyldu til að, og mun ekki, uppfæra þessar spár um framtíðarhorfur félagsins til að endurspegla atburði og aðstæður sem eiga sér stað eftir útgáfu þessarar fréttatilkynningar. Það er ábyrgð fjárfestis að reiða sig ekki seinna meir á spár um framtíðarhorfur sem eru settar fram í þessari fréttatilkynningu þar sem þær eiga eingöngu við á þeim tíma sem hún er gefin út. Spár um framtíðarhorfur gefa ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur og eru allar yfirlýsingar um framtíðarhorfur félagsins fullgildar í heild sinni með tilliti til þessa fyrirvara.