Hagar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup Haga hf. á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 4. viku 2020 keyptu Hagar hf. 3.000.000 eigin hluti fyrir kr. 170.900.000 eins og hér segir:

Dags. Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Eigin hlutir eftir viðskipti
25.1.2021 09:35 500.000 56,5 28.250.000 20.273.750
25.1.2021 09:37 500.000 56,5 28.250.000 20.773.750
26.1.2021 14:36 200.000 57,4 11.480.000 20.973.750
26.1.2021 14:38 300.000 57,4 17.220.000 21.273.750
27.1.2021 09:48 500.000 57,4 28.700.000 21.773.750
28.1.2021 09:37 500.000 57,0 28.500.000 22.273.750
29.1.2021 09:50 300.000 57,0 17.100.000 22.573.750
29.1.2021 09:53 200.000 57,0 11.400.000 22.773.750
Samtals 3.000.000 170.900.000 22.773.750

Er hér um að ræða tilkynningu um kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 19. janúar 2021, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 18. janúar 2021.

Hagar hafa keypt samtals 5.000.000 hluti í félaginu sem samsvarar 4,99% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 287.450.000 sem samsvarar 57,49% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Hagar eiga nú samtals 1,93% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.180.624.568.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 100.288.706 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 500 milljónir króna. Áætlunin er í gildi til 9. júní 2021, eða fram að aðalfundi félagsins 2021, nema ef skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005, um innherjaupplýsingar og markaðssvik.