Aðalfundur Reita fasteignafélags hf. verður haldinn kl. 15.00, fimmtudaginn 11. mars 2021 í fundarsal B á Hotel Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, 105 Reykjavík.
Drög að dagskrá fundarins:
- Stjórn skýrir frá rekstri félagsins og hag þess á liðnu ári
- Ársreikningur og samstæðureikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagðir fram til staðfestingar
- Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar félagsins á síðastliðnu starfsári
- Tillögur stjórnar lagðar fyrir aðalfund:
a. Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum
b. Tillaga um starfskjarastefnu félagsins.
c. Tillaga um skipun nefndarmanna í tilnefningarnefnd - Kosning stjórnarmanna félagsins
- Kosning endurskoðanda eða endurskoðunarfélags
- Ákvörðun um laun stjórnar, undirnefnda stjórnar og tilnefningarnefndar fyrir komandi starfsár
- Önnur mál, löglega upp borin
Hjálagt er fundarboð, tillögur stjórnar og skýrsla tilnefningarnefndar.
Ársskýrsla Reita 2020 hefur verið gefin út og er hún aðgengileg hér.