Reginn hf. - Reginn gefur út græn skuldabréf



Reginn fasteignafélag (Nasdaq: REGINN) heldur lokað útboð á skuldabréfum félagsins fimmtudaginn 4. mars næstkomandi. Boðnir verða til sölu tveir flokkar, REGINN23 GB og REGINN280130.

REGINN23 GB er óverðtryggður flokkur sem ber 3,20% vexti og hefur lokagjalddaga þann 30. júní 2023. Stærð flokksins er nú 2.000 m.kr. að nafnverði.

REGINN280130 er verðtryggður flokkur sem ber 2,50% vexti og hefur lokagjalddaga 28. janúar 2030. Stærð flokksins er nú 6.420 m.kr. að nafnverði.

Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna.


Nánari upplýsingar:
Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is  - S: 512 8900 / 899 6262