Aðalfundur Regins hf. verður haldinn miðvikudaginn 10. mars 2021 kl. 16:00 í Hvammi fundarsal á Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 28, 105 Reykjavík.
Framboðsfrestur til stjórnar Regins hf. rann út þann 3. mars sl.
Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins:
Í framboði til stjórnar eru:
Albert Þór Jónsson
Bryndís Hrafnkelsdóttir
Guðrún Tinna Ólafsdóttir
Heiðrún Emilía Jónsdóttir
Már Wolfgang Mixa
Tómas Kristjánsson
Mat stjórnar er að öll framboð séu gild sbr. 63.gr.a. hlutafélagalaga nr. 2/1995.
Nánari upplýsingar um frambjóðendur má finna í viðhengi.
Engar breytingar hafa orðið á dagskrá og tillögum sem birtar voru 16. febrúar sl. Önnur fundargögn tengd aðalfundi, umboðsform, skýrsla tilnefningarnefndar o.fl. má nálgast á vef félagsins www.reginn.is/fjarfestavefur.
Kópavogur, 4. mars 2021.
Stjórn Regins hf.
Viðhengi