Source: Reitir fasteignafélag hf.

REITIR: Niðurstöður aðalfundar 2021

Fimmtudaginn 11. mars 2021 var aðalfundur Reita fasteignafélags hf. haldinn á Hotel Hilton Reykjavík Nordica. Fundurinn hófst kl. 15.00.

Tillögur þær sem lágu fyrir fundinum má finna á vefsíðu félagsins: https://www.reitir.is/static/files/Adalfundir/2021-Adalfundur/endanlegar-tillogur-stjornar-til-aoalfundar-2021.pdf

1. Ársreikningur og samstæðureikningur félagsins fyrir liðið starfsár
Aðalfundur samþykkti ársreikning og samstæðureikning félagsins vegna ársins 2020.

2. Ráðstöfun hagnaðar félagsins á síðastliðnu starfsári
Tillaga stjórnar um að greiða út arð að fjárhæð 1 kr. fyrir hverja krónu nafnverðs útistandandi hlutafjár í félaginu vegna rekstrarársins 2020 var samþykkt. Arðgreiðsludagur verður þann 10. júní 2021, 12. mars 2021 er arðleysisdagur og 15. mars 2021 verður arðsréttindadagur.

3. Heimild til kaupa á eigin bréfum
Aðalfundur samþykkti tillögu stjórnar um heimild til kaupa á eigin bréfum.

4. Starfskjarastefna félagsins
Aðalfundur samþykkti tillögu stjórnar um óbreytta starfskjarastefnu félagsins.

5. Skipun nefndarmanna í tilnefningarnefnd
Aðalfundur staðfesti skipun Margretar Flóvenz, Berglindar Óskar Guðmundsdóttur og Hilmars G. Hjaltasonar í tilnefningarnefnd félagsins.

6. Kjör stjórnarmanna félagsins
Eftirtaldir aðilar gáfu kost á sér til setu í stjórn félagsins og voru þau sjálfkjörin:
Gréta María Grétarsdóttir
Kristinn Albertsson
Martha Eiríksdóttir
Sigríður Sigurðardóttir
Þórarinn V. Þórarinsson

7. Kjör endurskoðanda eða endurskoðunarfélags
Aðalfundur samþykkti að Ernst & Young ehf. yrði endurskoðunarfélag félagsins.

8. Ákvörðun um laun stjórnar, undirnefnda stjórnar og tilnefningarnefndar fyrir komandi starfsár
Aðalfundur félagsins samþykkti laun stjórnar, undirnefnda stjórnar og tilnefningarnefndar fyrir komandi starfsár verði óbreytt frá fyrra ári. Stjórnarlaun verði 360.000 kr. á mánuði, laun stjórnarformanns verði 718.000 kr. á mánuði. Þóknun til formanns endurskoðunarnefndar verður 140.000 kr. á mánuði og til annarra nefndarmanna 80.000 kr. á mánuði. Þóknun nefndarmanna í starfskjaranefnd verður 40.000 kr. 3 á mánuði. Fyrir störf í tilnefningarnefnd fái hvor nefndarmaður greiddar 660.000 kr. fyrir starfsárið, en formaður fái greiddar 990.000 kr. fyrir starfsárið. Greiðslur til endurskoðenda félagsins skulu vera samkvæmt reikningi.

9. Önnur mál
Engin önnur mál voru tekin til afgreiðslu á fundinum og var honum slitið kl. 16.04.