REITIR: Útboð á skuldabréfum 25. mars 2021


Reitir fasteignafélag hf. efnir til útboðs á skuldabréfum fimmtudaginn 25. mars næstkomandi. Boðin verða til sölu skuldabréf í flokkunum REITIR150523 og REITIR150527, sem báðir eru veðtryggðir með fyrirliggjandi almennu tryggingarfyrirkomulagi félagsins.

REITIR150523 er óverðtryggður flokkur sem ber 3,05% fasta ársvexti og hefur einn gjalddaga höfuðstóls 15. maí 2023. Áður hafa verið seld skuldabréf í flokknum að nafnvirði 4.000 m.kr.

REITIR150527 er nýr verðtryggður flokkur með lokagjalddaga 15. maí 2027 en endurgreiðsluferli höfuðstóls fylgir 30 ára greiðsluferli með jöfnum afborgunum. Meðallíftími flokksins (e. duration) á útgáfudegi er um 5 ár. Flokkurinn ber fasta 1,4% vexti en greiðslur vaxta og afborgana verða á tveggja mánaða fresti. Óskað verður eftir því að flokkurinn verði tekinn til viðskipta á Nasdaq Iceland.

Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið er í hverjum flokki. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er, í heild eða að hluta, eða hafna þeim öllum. Áætlaður uppgjörsdagur er þriðjudagurinn 30. mars 2021.

Útboðið er lokað og undanþegið gerð lýsingar, sbr. a- og b-liður 4. mgr. 1. gr. reglugerðar (ESB) 2017/1129, sbr. lög nr. 14/2020. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreindra skuldabréfaflokka verða birt á vefsíðu félagsins, reitir.is/fjarfestar. Tilkynningar sem Reitir fasteignafélag hf. birtir í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins.

Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland.

Nánari upplýsingar veita:

Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, netfang: einar@reitir.is, sími: 699-4416

Matei Manolescu, Markaðir,  Fossar markaðir, netfang: matei.manolescu@fossarmarkets.com, sími: 522 4008.