Hagar hf.: Upplýsingar um birtingu ársuppgjörs 2020/21


Hagar hf. birta ársuppgjör sitt, þ.e. tímabilið 1. mars 2020 til 28. febrúar 2021, eftir lokun markaða, mánudaginn 10. maí nk.

Rafrænn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn þann 11. maí kl. 08:30. Fundinum verður varpað í gegnum netið á vefslóðinni https://livestream.com/accounts/11153656/events/9646679/player þar sem Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna rekstur og afkomu félagsins, ásamt því að svara fyrirspurnum.

Tekið verður við spurningum sem tengjast uppgjörinu á meðan á útsendingu stendur á netfangið fjarfestakynning@hagar.is og verður þeim svarað eins og kostur er í lok fundar.

Kynningargögn verða aðgengileg á heimasíðu Haga, www.hagar.is, við upphaf fundar.