Síminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 19. viku 2021 keypti Síminn hf. 6.000.000 eigin hluti að kaupverði 59.700.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti
10.5.202110:041.500.00010,12515.187.50038.359.967
11.5.202109:371.500.0009,92514.887.50039.859.967
12.5.202109:361.500.0009,83014.745.00041.359.967
14.5.202109:561.500.0009,92014.880.00042.859.967
  6.000.000 59.700.00042.859.967


Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 3. maí 2021. Endurkaup núna samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 1.000 milljónum króna. Endurkaupaáætlunin er í gildi í 18 mánuði frá síðasta aðalfundi, en þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins árið 2022, eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þann tíma.

Síminn átti 36.859.967 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 42.859.967 eða sem nemur 0,57% af útgefnum hlutum í félaginu.

Síminn hefur keypt samtals 12.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,16% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 120.675.000 kr.

Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is.