Eik fasteignafélag hf.: Skráning skuldabréfaflokksins EIK 23 1


Eik fasteignafélag hf. hefur birt lýsingu, dagsetta 18. maí 2021. Lýsingin samanstendur af tveimur aðskildum skjölum, útgefandalýsingu og verðbréfalýsingu, og er birt í tengslum við umsókn útgefanda um að skuldabréf í flokknum EIK 23 1 verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. Lýsingin hefur verið staðfest af Fjármálaeftirlitinu.

Íslandsbanki hf. hafði umsjón með því ferli að fá lýsinguna staðfesta hjá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands og töku skuldabréfaflokksins til viðskipta. Lýsingin er hér meðfylgjandi og má einnig finna á heimasíðu útgefanda, www.eik.is/fjarfestar. Gögnin má nálgast á skrifstofu félagsins í Sóltúni 26 í Reykjavík. Áætlað er að skuldabréfaflokkurinn verði tekinn til viðskipta þann 21. maí 2021.

Nafnverð útgáfu
Gefin hafa verið út skuldabréf að nafnverði kr. 1.200.000.000 en flokkurinn getur mest orðið kr. 2.000.000.000 að stærð. Öll útgefin skuldabréf í flokknum hafa verið seld. Skuldabréfin eru gefin út rafrænt hjá Nasdaq verðbréfamiðstöð hf. í  kr. 20.000.000 einingum. Auðkenni skuldabréfaflokksins í viðskiptakerfi Nasdaq Iceland hf. verður EIK 23 1. ISIN númer bréfanna er IS0000032787.  

Nánari upplýsingar veitir Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, á netfanginu lydur@eik.is eða í síma 820-8980.

Viðhengi



Attachments

21.05.18 Útgefandalýsing 21.05.18 Verðbréfalýsing EIK 23 1