Kvika banki hf.: Tilkynning um uppgreiðslu KVB 15 01


Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands veitti Kviku banka hf. þann 11. maí sl. heimild til uppgreiðslu skuldabréfaflokksins KVB 15 01 (IS0000026128) (hér eftir „skuldabréfaflokkurinn“).

Með vísan til ofangreinds sem og uppgreiðsluheimildar sem er að finna í 2. kafla útgáfulýsingar skuldabréfaflokksins tilkynnist hér með að útgefandi mun greiða upp (innkalla) öll skuldabréf skuldabréfaflokksins, þ.e. höfuðstól skuldabréfanna, auk áfallinna vaxta og verðbóta, á næsta vaxtagjalddaga, þann 25. ágúst 2021.

Nánari upplýsingar veitir Halldór Karl Högnason forstöðumaður fjárstýringar,  (halldor.hognason@kvika.is / s: 540 3200).