TM tryggingar hf. ("TM"), dótturfélag Kviku banka hf., hefur selt allan eignarhlut sinn í Stoðum hf. ("Stoðir"). Um er að ræða 1.569,7 milljónir hluta sem jafngildir 11,6% af heildarhlutafé Stoða. Eignarhluturinn í Stoðum var stærsta fjárfestingaeign TM en í lok fyrsta ársfjórðungs nam virði hlutarins rúmum 4,3 mö.kr. eða sem nemur 14% af fjárfestingaeignum. Söluvirðið er allt greitt með handbæru fé og mun salan hafa rúmlega 200 m.kr. jákvæð áhrif á afkomu TM á öðrum ársfjórðungi. Hluturinn var seldur til hóps fjárfesta í gegnum söluferli sem Íslenskir fjárfestar hf. sáu um fyrir hönd TM.
Recommended Reading
-
In week 40 Kvika banki hf. purchased 10,500,000 of its own shares at the purchase price ISK 130,305,000. See further details below: DateTimeNo. of sharesShare pricePurchase...
Read More -
In week 39 Kvika banki hf. purchased 7,095,000 of its own shares at the purchase price ISK 87,665,375. See further details below: DateTimeNo. of sharesShare pricePurchase...
Read More