Reginn hf. - Reginn gefur út græn skuldabréf



Reginn hf. (Nasdaq: REGINN) heldur lokað útboð á skuldabréfum félagsins miðvikudaginn 2. júní næstkomandi. Boðinn verður til sölu nýr grænn skuldabréfaflokkur REGINN27 GB.

REGINN27 GB er verðtryggður flokkur sem ber 1,25% vexti og hefur lokagjalddaga þann 28. júní 2027 en endurgreiðsluferli höfuðstóls fylgir 30 ára greiðsluferli með jöfnum afborgunum. Áætlaður uppgjörsdagur er miðvikudagurinn 9. júní 2021 og sótt verður um skráningu skuldabréfanna á markað Nasdaq Iceland fyrir sjálfbær skuldabréf.  

Kröfur samkvæmt skuldabréfunum eru tryggðar samkvæmt almenna tryggingarfyrirkomulaginu.

Umgjörð Regins um græna fjármögnun ásamt vottun CICERO má nálgast á vefsíðu Regins á slóðinni https://www.reginn.is/en/investors/green-financing.

Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna.


Nánari upplýsingar:
Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is  - S: 512 8900 / 899 6262