Kvika banki hf.: Leiðrétting – Afkomutilkynning fyrir fyrsta ársfjórðung 2021


Í skýringu nr. 3, b og c lið, á blaðsíðu 12 í árshlutauppgjöri samstæðunnar 31.03.2021 sem birt var þann 27. maí s.l., er fjallað um afkomu samstæðunnar ef að annars vegar Netgíró hf. og hinsvegar Aur app ehf., hefðu verið hluti af rekstri samstæðunnar allan ársfjórðunginn. Fyrir mistök var sagt að um afkomu eftir skatt væri að ræða en hið rétta er að um afkomu fyrir skatt er að ræða. Framangreind leiðrétting hefur ekki áhrif á rekstrarreikning eða efnahagsreikning samstæðunnar.