Skeljungur hf.: Frestur til að leggja fram óskuldbindandi tilboð í P/F Magn, dótturfélag Skeljungs, lengdur til 9. júní nk.


Þann 19. maí síðastliðinn var birt tilkynning þess efnis að stjórn Skeljungs hf. hafi ákveðið að bjóða fjárfestum að leggja fram óskuldbindandi tilboð í P/F Magn, dótturfélag Skeljungs í Færeyjum, og skyldi tilboðum skilað inn fyrir 4. júní nk.

Vegna aukins áhuga fjárfesta og beiðni þeirra um lengri tímafrest hefur stjórn Skeljungs ákveðið að lengja frestinn til að skila inn tilboðum í P/F Magn til 9. júní nk.

Tilboðum skal skilað til fyrirtækjaráðgjafar Kviku banka hf., ráðgjafa Skeljungs. Möguleg sala P/F Magn er háð samþykki hluthafafundar Skeljungs sem og öðrum skilyrðum sem aðilar kunna að setja.

Óvíst er hver framgangur málsins verður og verða frekari upplýsingar veittar eftir framvindu mála.

Vakin er athygli á því að framangreint er liður í mati á framtíðarkostum eignarhalds á P/F Magn sbr. tilkynningu sem birt var þann 24. mars síðastliðinn.

Nánari upplýsingar veitir Árni Pétur Jónsson, forstjóri, fjarfestar@skeljungur.is

www.skeljungur.is

https://www.linkedin.com/company/skeljungur-hf/