Vís: Correction: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 22. viku 2021 keypti Vátryggingafélag Íslands hf. (VÍS) 10.000.000 eigin hluti fyrir kr. 160.750.000 eins og hér segir:

VikaDagsetningTími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð  Eigin hlutir eftir viðskipti
2231.05.202109:38              2.000.000 16,3   32.600.000    51.349.253   
2201.06.202112:04              2.000.000 16,05   32.100.000    53.349.253   
2202.06.202109:40              2.000.000 16,05   32.100.000    55.349.253   
2203.06.202109:35              2.000.000 16,05   32.100.000    57.349.253   
2204.06.202110:30              2.000.000 15,925   31.850.000    59.349.253   
Samtals              10.000.000   160.750.000       59.349.253

Kaupin eru í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 17. maí 2021, sbr. tilkynningu á markað sama dag.

VÍS hefur nú keypt samtals 28.000.000 hluti í félaginu sem samsvarar 99,60% af þeim eigin hlutum sem að hámarki var heimilt að kaupa samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 454.150.000 sem samsvarar 90,83% af þeirri fjárhæð sem að hámarki mátti kaupa fyrir. VÍS á nú samtals 59.349.253 hluti eða 3,13% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.894.462.192.

Í endurkaupaáætluninni kemur fram að ekki verði keyptir fleiri en 28.112.939 hlutir og fjárhæð endurkaupanna ekki vera hærri en 500 milljónir króna. Áætlunin er í gildi til 17. júlí 2021, nema ef skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005, um innherjaupplýsingar og markaðssvik.