Kristín Friðgeirsdóttir hefur verið ráðin sem fjármálastjóri Sýnar hf. Hún tekur við af Signýju Magnúsdóttur sem snýr aftur til Deloitte og bætist í hóp hluthafa þess félags.
Kristín hefur undarfarin ár starfað sem alþjóðlegur ráðgjafi í tekjustýringu, gagnagreiningu og stefnumarkandi ákvarðanatöku. Hún hefur jafnframt kennt MBA og stjórnendanámskeið í London Business School. Kristín hefur setið í stjórnum Kviku banka, Eikar, Controlant, Distica og Völku og var áður varaformaður TM og stjórnarformaður Haga. Kristín er með mastersgráðu í fjármálaverkfærði og doktorsgráðu í rekstrarverkfræði frá Stanford háskóla.
“Ég vil sérstaklega þakka Signýju fyrir hennar ómetanlega starf í að snúa rekstri félagsins til betri vegar. Nú þegar umsnúningur hefur orðið hverfur hún aftur á fyrri vettvang. Eins vil ég bjóða Kristínu hjartanlega velkomna. Hún kemur á réttum tíma inní frekari framþróun fyrirtækisins.”