VÍS: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar


Á aðalfundi Vátryggingafélags Íslands hf. þann 19. mars 2021 var samþykkt að heimila stjórn, í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun, að kaupa á næstu 12 mánuðum allt að 10% af hlutafé félagsins.

Stjórn VÍS hefur á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins.

Hámarksfjöldi hluta sem áætlunin kveður á um að verði keyptir er 35.000.000 hlutir að nafnvirði, en það jafngildir um 1,85% af útgefnu hlutafé félagsins, sem er nú kr. 1.894.462.192 að nafnvirði. Heimildin gildir í tvo mánuði frá og með þeim degi að samþykki Fjármálaeftirlitsins fyrir endurkaupunum fæst.

Verð fyrir hvern hlut skal að hámarki vera hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í viðskiptakerfi Nasdaq Iceland, hvort sem er hærra. Hámarksmagn hvers viðskiptadags er 1.500.000 hlutir að nafnverði, sem er innan við fjórðungur af meðalveltu síðustu fjögurra vikna. Viðskipti félagsins með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt í samræmi við lög og reglugerðir.

Fyrir á Vátryggingafélag Íslands hf. 59.462.192 eigin hluti.

Endurkaupin verða framkvæmd af Íslenskum fjárfestum hf. sem tekur allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu. Framkvæmd endurkaupaáætlunar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005.

Endurkaup vátryggingafélaga í þeim tilgangi að lækka hlutafé eru háð fyrirfram samþykki fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands. Tilkynnt verður sérstaklega þegar slíkt samþykki hefur verið veitt og endurkaup munu hefjast.