Á fundi borgarráðs í dag, þann 24. júní 2021, verða lögð fyrir drög að samningum um fækkun bensínstöðva Olís og annarra rekstraraðila og lóðarhafa eldsneytisstöðva í Reykjavík. Hagar hf. og Olíuverzlun Íslands ehf. hafa staðfest samningsdrögin, sem byggja á yfirlýstum markmiðum Reykjavíkurborgar frá því í maí 2019 um fækkun eldsneytisstöðva innan borgarmarkanna. Samningarnir sem um ræðir eru eftirfarandi:
- Rammasamkomulag vegna fyrirhugaðra breytinga á aðstöðu eldsneytisstöðva Olís og ÓB
- Samkomulag vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á lóðinni Álfabakka 7
- Samkomulag vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á lóðinni Álfheimum 49
- Samkomulag vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á lóðinni Egilsgötu 5
- Lóðarvilyrði um lóð á Esjumelum fyrir fjölorkustöð
- Samkomulag vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á lóðinni Stekkjarbakka 4-6
Efnisinnihald samninganna er að svo stöddu trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veitir Finnur Oddsson, forstjóri Haga, fo@hagar.is