Kvika banki hf.: Tilkynning um nýtingu áskriftarréttinda og hækkun hlutafjár


Stjórn Kviku banka hf. („Kvika“ eða „félagið“) hefur síðan á síðasta stjórnarfundi tekið fyrir 4 tilkynningar eigenda áskriftarréttinda að hlutum í félaginu, að nafnvirði samtals 12.166.666 kr., um nýtingu réttindanna.

Allar tilkynningarnar eru vegna áskriftarréttinda sem gefin voru út og seld á árunum 2017 og 2018 á grundvelli bráðabirgðaákvæðis IV í samþykktum félagsins. Um er að ræða nýtingu á áskriftarréttindum að 12.166.666 nýjum hlutum á genginu 7,1994520. Kaupverð hinna nýju hluta nemur því kr. 87.593.327.

Með vísan til samninga um útgáfu áskriftarréttindanna er stjórn skylt að hækka hlutafé til að mæta skuldbindingum samkvæmt réttindunum og gefa út hlutafé, skrá rétthafa í hlutaskrá og tryggja skráningu þeirra sem rétthafa í verðbréfamiðstöð, sbr. lög nr. 7/2020 um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignaskráningu fjármálagerninga.

Stjórn nýtti í dag heimild sína samkvæmt bráðabirgðaákvæði IV í samþykktum félagsins til að hækka hlutafé þess í þeim tilgangi að mæta nýtingu framangreindra áskriftarréttinda. Hlutafé félagsins verður því hækkað um kr. 12.166.666 og mun eftir hækkun standa í kr. 4.750.378.237 að nafnvirði, með útgáfu nýrra hluta.

Hlutafjárhækkunin verður tilkynnt til og skráð af Fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra og nýir hlutir verða gefnir út af Nasdaq verðbréfamiðstöð og óskað verður eftir töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Tilkynning þessi er í samræmi við verklag sem félagið tilkynnti um þann 19. september 2019.