Reginn hf.: Birting grunnlýsingar



Reginn hf. kt. 630109-1080, Hagasmára 1, 201 Kópavogi, hefur birt grunnlýsingu í tengslum við útgáfuramma skuldabréfa. Grunnlýsingin er dagsett 24. júní 2021 og hefur verið staðfest af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands. Grunnlýsingin er gefin út á íslensku og birt á vefsíðu Regins hf., www.reginn.is/fjarfestavefur/. Grunnlýsinguna má nálgast á vefsíðunni næstu tíu ár frá staðfestingu hennar og hjá útgefanda á skrifstofu félagsins að Hagasmára 1, Kópavogi.

Nánari upplýsingar um Reginn hf. og útgáfurammann má finna í framangreindri grunnlýsingu og á vefsíðu félagsins. Fossar markaðir hf. hafði umsjón með því ferli að fá grunnlýsinguna staðfesta hjá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands.


Nánari upplýsingar veita:

Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262

Jóhann Sigurjónsson – Fjármálastjóri -  johann@reginn.is - S: 512 8900 / 859 9800

Viðhengi



Attachments

Grunnlýsing Reginn - undirrituð - 24062021