Source: Reitir fasteignafélag hf.

Reitir kaupa fjórar verslunareignir af Festi fasteignum ehf.

Reitir hafa ákveðið að ganga til samninga við Festi fasteignir ehf. um kaup á fjórum fasteignum undir verslanir Krónunnar auk annarra leigutaka.

Heildarvirði kaupanna er 4.150 m.kr. og verður að fullu fjármagnað með handbæru fé og lánsfé. Um er að ræða tæplega 13.000 útleigufermetra af vönduðu verslunarhúsnæði. Þessar fasteignir eru að Háholti 13-15 í Mosfellsbæ, Dalbraut 1 á Akranesi, Austurvegi 1-5 á Selfossi og Hafnargötu 2 á Reyðarfirði.

Eignirnar eru í útleigu til fjölmargra öflugra leigutaka en þar ber helst að nefna Krónuna sem stendur fyrir tæplega 50% af leigutekjunum. Krónan mun gera 15 ára leigusamninga við Reiti á Dalbraut, Austurvegi og Hafnargötu. Aðrir leigutakar eru m.a. Rúmfatalagerinn, Mosfellsbakarí, apótek, Sveitafélagið Fjarðabyggð, Pizzan, Penninn, Mannvit og Lindex. Leigutekjur á ársgrunni nema um 320 m.kr. og er meðaltími leigusamninga tæp 10 ár. Kaupin leiða til þess að áætlaður rekstrarhagnaður (NOI) Reita hækkar um 250 m.kr. á ársgrundvelli. 

Afhending eignanna mun fara fram þegar fyrirvörum um viðskiptin hefur verið aflétt en fyrirvarar eru gerðir um niðurstöður hefðbundinna áreiðanleikakannana, samþykki Samkeppniseftirlitsins, fjármögnun viðskiptanna og afléttingu forkaupsréttar að Austurvegi 1-5 á Selfossi.

Nánari upplýsingar veita:
Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita fasteignafélags í síma 660 3320 og á gudjon@reitir.is
Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri Reita fasteignafélags í síma 669 4416 og á einar@reitir.is