Hagar hf.: Breyting á framkvæmdastjórn


Breytingar verða á framkvæmdastjórn Haga hf. á haustmánuðum þegar Kjartan Már Friðsteinsson, framkvæmdastjóri Banana ehf., lætur af störfum. Kjartan, sem fagnaði 70 ára stórafmæli sínu í mars síðastliðnum, hefur beðist lausnar úr starfi eftir farsælan feril sem framkvæmdastjóri Banana frá árinu 1995.

Kjartan mun starfa áfram sem framkvæmdastjóri þar til ráðið hefur verið í hans stað. Unnið er að ráðningu og verður starfið auglýst á næstu dögum. Gert er ráð fyrir að ráðningaferli ljúki á haustmánuðum og verður frekar upplýst um það þá.

Nánari upplýsingar veitir Finnur Oddsson, forstjóri Haga, fo@hagar.is