Kvika banki hf.: Heimild veitt fyrir endurkaupaáætlun


Þann 27. maí síðastliðinn var af hálfu Kviku banka hf. („Kvika“ eða „bankinn“) tilkynnt að stjórn bankans hefði samþykkt endurkaupaáætlun á eigin bréfum bankans. Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur nú veitt Kviku heimild til að framkvæma þá áætlun sem nær til endurkaupa á allt að 117.000.000 hluta eða um 2,5% af útgefnu hlutafé bankans.