María Björk Einarsdóttir framkvæmdastjóri Ölmu íbúðafélags hf., sem nú er í fæðingarorlofi, hefur sagt upp störfum hjá félaginu. Stjórn Ölmu íbúðafélags hf. þakkar Maríu Björk góð störf fyrir félagið á undanförnum árum og óskar henni velfarnaðar í nýju starfi.
Ingólfur Árni Gunnarsson sem var ráðinn framkvæmdastjóri félagsins tímabundið á meðan María var í fæðingarorlofi tekur nú við starfinu ótímabundið.
Nánari upplýsingar veitir Ingólfur Árni, framkvæmdastjóri – netfang ingolfur@al.is.