Uppgreiðsla skuldabréfaflokks KLS 13 1, 20. ágúst 2021


KLS fagfjárfestasjóður, sérhæfður sjóður í rekstri Stefnis hf., gaf þann 20. febrúar 2013 út skuldabréfaflokkinn KLS 13 1, sem skráður er á Nasdaq OMX Iceland.

Lántaki sjóðsins, RA5 ehf., hefur í dag tilkynnt sjóðnum að hann muni nýta sér rétt til uppgreiðslu. Í samræmi við skilmála skuldabréfaflokksins myndast uppgreiðsluskylda sjóðsins á flokknum. Uppgreiðslugjald nemur 1,5% af uppreiknaðri fjárhæð þeirrar afborgunar, sem greidd er umfram hina samningsbundnu afborgun á viðkomandi gjalddaga.

Næsti gjalddagi skuldabréfsins er 20. ágúst 2021 og verður flokkurinn greiddur upp þann dag.

Frekari upplýsingar veitir Anna Kristjánsdóttir, forstöðumaður skuldabréfa hjá Stefni hf.: s. 444 7461