Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 30 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 10.000.000 eigin hluti að kaupverði 238.650.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð
26.7.202109:45:022.000.00023,90047.800.000
27.7.202110:07:151.000.00023,75023.750.000
27.7.202110:39:421.000.00023,75023.750.000
28.7.202109:43:122.000.00023,80047.600.000
29.7.202110:56:321.000.00023,90023.900.000
29.7.202111:11:241.000.00023,90023.900.000
30.7.202109:40:261.000.00023,97523.975.000
30.7.202110:51:281.000.00023,97523.975.000
Samtals 10.000.000 238.650.000

Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 16. júlí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 21. apríl 2021.

Kvika átti 10.000.000 hluti fyrir viðskiptin og hefur því keypt samtals 20.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,42% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 477.250.000 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 117.256.300 hlutum. Þar að auki á TM tryggingar hf., dótturfélag bankans, 6.400.000 hluti sem félagið áti við sameiningu TM hf. og Kviku.

Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 19. júlí 2021 til aðalfundar Kviku á árinu 2022, nema hámarks fjölda keyptra hluta verði náð fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“

Nánari upplýsingar veitir Halldór Karl Högnason, forstöðumaður fjárstýringar, í síma 540 3200.