Reginn hf.: Birting uppgjörs annars ársfjórðungs 2021



Reginn mun birta samþykkt uppgjör fyrir annan ársfjórðung ársins 2021, eftir lokun markaða fimmtudaginn 12. ágúst 2021.

Af því tilefni býður Reginn hf. til rafræns kynningarfundar föstudaginn 13. ágúst nk. kl. 8:30.

Helgi S. Gunnarsson forstjóri Regins mun kynna uppgjörið. Hægt er að senda fyrirspurnir á fjarfestatengsl@reginn.is fyrir fundinn og meðan á kynningu stendur sem svarað verður að kynningu lokinni.

Fundinum verður varpað í gegnum netið á eftirfarandi slóð:

https://vimeo.com/event/1182815/embed/fb96e6c73f

Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262