Í viku 31 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 8.000.000 eigin hluti að kaupverði 192.900.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð |
3.8.2021 | 09:48:20 | 1.000.000 | 24,125 | 24.125.000 |
3.8.2021 | 09:50:38 | 1.000.000 | 24,125 | 24.125.000 |
4.8.2021 | 09:42:32 | 2.000.000 | 24,125 | 48.250.000 |
5.8.2021 | 09:41:19 | 2.000.000 | 24,075 | 48.150.000 |
6.8.2021 | 09:51:44 | 1.000.000 | 24,050 | 24.050.000 |
6.8.2021 | 10:16:09 | 1.000.000 | 24,200 | 24.200.000 |
Samtals | 8.000.000 | 192.900.000 |
Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 16. júlí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 21. apríl 2021.
Kvika átti 20.000.000 hluti fyrir viðskiptin og hefur því keypt samtals 28.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,59% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 670.150.000 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 117.256.300 hlutum. Þar að auki á TM tryggingar hf., dótturfélag bankans, 6.400.000 hluti sem félagið áti við sameiningu TM hf. og Kviku.
Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 19. júlí 2021 til aðalfundar Kviku á árinu 2022, nema hámarks fjölda keyptra hluta verði náð fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir Halldór Karl Högnason, forstöðumaður fjárstýringar, í síma 540 3200.