Eimskip birtir uppgjör annars ársfjórðungs 2021


Kynningarfundur 20. ágúst 2021

Eimskipafélag Íslands hf. birtir uppgjör annars ársfjórðungs eftir lokun markaða fimmtudaginn 19. ágúst 2021.

Eimskip býður fjárfestum og markaðsaðilum til rafræns fundar þar sem Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri mun kynna uppgjör fjórðungsins. Fundurinn verður haldinn föstudaginn 20. ágúst nk. kl. 8:30 og verður hann eingöngu sendur út í gegnum fjárfestasíðu félagsins www.eimskip.com/investors. Þar verður útbúinn sérstakur hlekkur áður en fundur hefst.

Fjárfestum er velkomið að senda spurningar fyrir og á meðan á fundi stendur á netfangið investors@eimskip.com.

Uppgjörsgögn verður hægt að nálgast á fjárfestasíðu Eimskips, www.eimskip.is/investors. Upptaka verður einnig aðgengileg á fjárfestasíðunni að fundi loknum.

Nánari upplýsingar veitir Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs í síma 825-3399 eða á investors@eimskip.com.