Í viku 32 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 10.000.000 eigin hluti að kaupverði 241.212.500 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð |
9.8.2021 | 09:47:33 | 1.000.000 | 23,950 | 23.950.000 |
9.8.2021 | 10:04:19 | 1.000.000 | 23,950 | 23.950.000 |
10.8.2021 | 09:41:22 | 1.000.000 | 23,900 | 23.900.000 |
10.8.2021 | 09:43:29 | 1.000.000 | 23,900 | 23.900.000 |
11.8.2021 | 09:43:25 | 1.000.000 | 24,100 | 24.100.000 |
11.8.2021 | 09:50:42 | 1.000.000 | 24,100 | 24.100.000 |
12.8.2021 | 09:58:52 | 1.000.000 | 24,175 | 24.175.000 |
12.8.2021 | 10:01:27 | 1.000.000 | 24,175 | 24.175.000 |
13.8.2021 | 09:58:38 | 1.250.000 | 24,350 | 30.437.500 |
13.8.2021 | 11:43:18 | 750.000 | 24,700 | 18.525.000 |
Samtals | 10.000.000 | 241.212.500 |
Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 16. júlí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 21. apríl 2021.
Kvika átti 28.000.000 hluti fyrir viðskiptin og hefur því keypt samtals 38.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,80% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 911.632.500 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 117.256.300 hlutum. Þar að auki á TM tryggingar hf., dótturfélag bankans, 6.400.000 hluti sem félagið áti við sameiningu TM hf. og Kviku.
Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 19. júlí 2021 til aðalfundar Kviku á árinu 2022, nema hámarks fjölda keyptra hluta verði náð fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir Halldór Karl Högnason, forstöðumaður fjárstýringar, í síma 540 3200.