Hluthafafundur Kviku banka hf., kt. 540502-2930, verður haldinn þriðjudaginn 7. september 2021 kl. 16:00, á starfsstöð félagsins að Katrínartúni 2, 9. hæð, 105 Reykjavík.
Á dagskrá fundarins verða eftirfarandi mál:
- Kosning eins aðalmanns og eins varamanns í stjórn félagsins.
- Önnur mál.
Fundarstörf fara fram á íslensku. Fundargögn eru aðgengileg á heimasíðu félagsins á íslensku og ensku. Sé misræmi milli fundargagna á íslensku og ensku, gildir íslenska útgáfan. Fundargögn eru aðgengileg á vefslóðinni https://www.kvika.is/fjarfestaupplysingar/hluthafafundir/ og skrifstofu félagsins að Katrínartúni 2, 105 Reykjavík.
Um frekari upplýsingar vísast til meðfylgjandi fundarboðs og samantektar um frambjóðendur.
Viðhengi