Árshlutareikningur SÍL hs. 30.6.2021


Sérhæfði hlutdeildarsjóðurinn SÍL hs. sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf sem tekin voru til viðskipta á First North Iceland Fixed Income í apríl árið 2021.

  • Hagnaður varð af rekstri sjóðsins að fjárhæð 4 þús. kr. á tímabilinu.
  • Eignir sjóðsins í lok júní 2021 námu 8.051 m.kr. og hrein eign sjóðsins nam 1 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
  • Árshlutareikningurinn var kannaður af Deloitte ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á tímabilinu, efnahagi hans 30. júní 2021 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á tímabilinu, í samræmi við lög um ársreikninga og lög um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.

Hægt verður að nálgast árshlutareikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.is

Nánari upplýsingar veita Anna Kristjánsdóttir í síma 444 7461 og Sigurður Óli Hákonarson í síma 444 7466.


Viðhengi



Attachments

SÍL hs. árshlutareikningur 2021