Í viku 33 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 10.000.000 eigin hluti að kaupverði 243.975.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð |
16.8.2021 | 09:41:10 | 1.000.000 | 24,65 | 24.650.000 |
16.8.2021 | 09:50:41 | 1.000.000 | 24,675 | 24.675.000 |
17.8.2021 | 09:41:05 | 1.000.000 | 24,75 | 24.750.000 |
17.8.2021 | 09:44:17 | 500.000 | 24,75 | 12.375.000 |
17.8.2021 | 09:45:00 | 500.000 | 24,75 | 12.375.000 |
18.8.2021 | 09:50:19 | 1.000.000 | 24,55 | 24.550.000 |
18.8.2021 | 09:54:45 | 1.000.000 | 24,55 | 24.550.000 |
19.8.2021 | 09:41:25 | 1.000.000 | 23,95 | 23.950.000 |
19.8.2021 | 09:42:39 | 1.000.000 | 23,95 | 23.950.000 |
20.8.2021 | 09:40:47 | 1.000.000 | 24,075 | 24.075.000 |
20.8.2021 | 09:41:40 | 1.000.000 | 24,075 | 24.075.000 |
Samtals | 10.000.000 | 243.957.000 |
Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 16. júlí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 21. apríl 2021.
Kvika átti 38.000.000 hluti fyrir viðskiptin og hefur því keypt samtals 48.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,01% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 1.155.337.500 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 117.256.300 hlutum. Þar að auki á TM tryggingar hf., dótturfélag bankans, 6.400.000 hluti sem félagið áti við sameiningu TM hf. og Kviku.
Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 19. júlí 2021 til aðalfundar Kviku á árinu 2022, nema hámarks fjölda keyptra hluta verði náð fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir Halldór Karl Högnason, forstöðumaður fjárstýringar, í síma 540 3200.