Veðskuldabréfasjóðurinn Virðing: Árshlutareikningur 30. júní 2021


Veðskuldabréfasjóðurinn Virðing sem er í rekstri Kviku eignastýringar hf. gaf út skuldabréf sem tekin voru til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2014. Meðfylgjandi er árshlutareikningur 30. júní 2021 fyrir Veðskuldabréfasjóðinn Virðingu.

  • Tap af rekstri sjóðsins á fyrstu sex mánuðum ársins nam 6,1 milljónum króna samkvæmt rekstrarreikningi.
  • Hrein eign sjóðsins nam 195,4 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi.
  • Árshlutareikningurinn var kannaður af Deloitte ehf. Við könnun þeirra kom ekkert fram sem bendir til annars en að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á tímabilinu, í samræmi við lög um ársreikninga og lög um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.

Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Kviku eignastýringar hf. í síma 522-0010.

Viðhengi



Attachments

ÁrshlutareikningurVirðing30.06.2021Final