AAM GLEQ3 gaf út skuldabréf sem tekin voru til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. á árinu 2016. Meðfylgjandi er árshlutareikningur 30. júní 2021 fyrir AAM GLEQ3.
- Hagnaður sjóðsins á fyrri árshelmingi 2021 nam 24 þús.kr. samkvæmt rekstrarreikningi.
- Hrein eign sjóðsins nam 540 þús.kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
- Árshlutareikningurinn var kannaður af Deloitte ehf. Við könnun þeirra kom ekkert fram sem bendir til annars en að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á tímabilinu, í samræmi við lög um ársreikninga og lög um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Kviku eignastýringar hf. í síma 522-0010.
Viðhengi