Kvika banki hf.: Tilkynning um hækkun hlutafjár


Þann 26. ágúst sl. tilkynnti Kvika banki hf. („félagið“) að stjórn hefði nýtt heimild sína samkvæmt bráðabirgðaákvæðI IV í samþykktum félagsins til að hækka hlutafé þess um kr. 21.749.999 að nafnvirði í þeim tilgangi að mæta nýtingu áskriftarréttinda.

Samkvæmt 19. gr. laga um upplýsingaskyldu útgefanda verðbréfa og flöggunarskyldu nr. 20/2021 skal útgefadi, ef hann hækkar eða lækkar hlutafé sitt eða fjölgar eða fækkar atkvæðum, við fyrsta tækifæri og eigi síðar en á síðasta viðskiptadegi mánaðar birta opinberlega heildarfjölda hluta og heildarfjölda atkvæða.

Framangreind hlutafjárhækkun hefur nú verið skráð hjá Fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra og hlutafé félagsins stendur í kr. 4.772.128.236 að nafnvirði. Þar af eru eigin hlutir 48.000.000 að nafnvirði. Hver hlutur er að fjárhæð ein króna og eitt atkvæði fylgir hverri einni krónu í hlutafé.

Óskað verður eftir því að hinir nýju hlutir verði gefnir út af Nasdaq verðbréfamiðstöð og sótt verður um töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.