Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 34 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 10.000.000 eigin hluti að kaupverði 236.850.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð
23.8.202109:48:561.200.00024,07528.890.000
23.8.202109:49:08800.00024,07519.260.000
24.8.202109:40:142.000.00023,95047.900.000
25.8.202109:40:341.000.00023,70023.700.000
25.8.202109:40:561.000.00023,70023.700.000
26.8.202110:10:431.000.00023,50023.500.000
26.8.202110:35:531.000.00023,30023.300.000
27.8.202109:48:111.000.00023,30023.300.000
27.8.202110:07:101.000.00023,30023.300.000
Samtals 10.000.000 236.850.000

Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 16. júlí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 21. apríl 2021.

Kvika átti 48.000.000 hluti fyrir viðskiptin og hefur því keypt samtals 58.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,22% af útgefnum hlutum í félaginu, en tilkynnt var um hlutafjárhækkun þann 27. ágúst s.l. Nemur heildarkaupverð þeirra 1.392.187.500, kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 117.256.300 hlutum. Þar að auki á TM tryggingar hf., dótturfélag bankans, 6.400.000 hluti sem félagið áti við sameiningu TM hf. og Kviku.

Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 19. júlí 2021 til aðalfundar Kviku á árinu 2022, nema hámarks fjölda keyptra hluta verði náð fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“

Nánari upplýsingar veitir Halldór Karl Högnason, forstöðumaður fjárstýringar, í síma 540 3200.