Brim hf.: Breytingar á samningi um viðskiptavakt


Breytingar hafa verið gerðar á samningi við Kviku banka hf. um viðskiptavakt. Breytingarnar eru til komnar vegna innleiðingar á MiFID II og taka gildi í dag, 1. september 2021.

Verðbil kaup- og sölutilboða skal nú ákvarðað með hliðsjón af verðskrefatöflu Kauphallarinnar eins og hún er hverju sinni þannig að verðbil verði sem næst 1,5% en þó ekki minna en 1,45%. Þó skal viðskiptavaka vera heimilt að fara tímabundið undir framangreint viðmið s.s. vegna aðstæðna sem skapast vegna verðskrefatöflu Kauphallarinnar.

Nánari upplýsingar veitir Inga Jóna Friðgeirsdóttir fjármálastjóri, ingajona@brim.is