Tilkynning frá OR


Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri fjármála Orkuveitu Reykjavíkur, hefur sagt starfi sínu lausu. Bjarni Freyr Bjarnason, sem verið hefur staðgengill framkvæmdastjóra fjármála um árabil, mun gegna starfinu þar til annað verður ákveðið. Starfið verður auglýst á næstu dögum.

Tengiliður:

Breki Logason
Forstöðumaður samskipta
GSM. 698 5671