Í viku 35 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 9.500.000 eigin hluti að kaupverði 225.870.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð |
30.8.2021 | 09:42:25 | 2.000.000 | 23,25 | 46.500.000 |
31.8.2021 | 09:44:22 | 2.000.000 | 23,375 | 46.750.000 |
1.9.2021 | 09:50:15 | 2.000.000 | 23,80 | 47.600.000 |
2.9.2021 | 11:53:44 | 400.000 | 24,10 | 9.640.000 |
2.9.2021 | 12:00:46 | 1.000.000 | 24,10 | 24.100.000 |
2.9.2021 | 14:27:10 | 400.000 | 24,40 | 9.760.000 |
2.9.2021 | 14:44:04 | 200.000 | 24,40 | 4.880.000 |
3.9.2021 | 10:12:19 | 1.000.000 | 24,40 | 24.400.000 |
3.9.2021 | 10:35:12 | 300.000 | 24,40 | 7.320.000 |
3.9.2021 | 14:08:57 | 200.000 | 24,60 | 4.920.000 |
Samtals | 9.500.000 | 225.870.000 |
Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 16. júlí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 21. apríl 2021.
Kvika átti 58.000.000 hluti fyrir viðskiptin og hefur því keypt samtals 67.500.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,41% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 1.618.057.500, kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 117.256.300 hlutum. Þar að auki á TM tryggingar hf., dótturfélag bankans, 6.400.000 hluti sem félagið áti við sameiningu TM hf. og Kviku.
Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 19. júlí 2021 til aðalfundar Kviku á árinu 2022, nema hámarks fjölda keyptra hluta verði náð fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir Halldór Karl Högnason, forstöðumaður fjárstýringar, í síma 540 3200.